Miss United States
06.02.2008 21:53:23 / gretasalome

All is clear!

Það er búið að ná manneskjunni og fara með hana á spítala. Ég held ekki að neitt hafi gerst fyrir neinn annan en vá hvað þetta var óþægilegt. Ég var að segja við einn vin minn hérna að þetta væri eins og að búa í Michael Moore bíómynd! Ekki gott!

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 19:27:36 / gretasalome

AFTUR??

Vá hvað þetta er eitthvað skrýtið! Ég og Christie vorum að fara út að hlaupa fyrir svona korteri síðan og þegar við vorum að fara út þá kom ein stelpan úr heimavistinni og sagði okkur að vera inni og hún læsti hurðinni. VIð vissum ekkert hvað var í gangi og hún sagði okkur ða fara upp á hernergin okkar og lesa tölvupóstinn okkar. Við gerðum það og þar stóð að það hefði verið sjálfsmorðstilraun og manneskjan hefði sloppið og væri núna gangandi um campus með byssu. Við vorum núna að fá að vita að við ættum að vera inni á herbergjunum okkar og að sá hluti campus sem ég bý á væri sérstaklega hættulegur núna...þá er bara að bíða! Ég læt vita um leið og ég heyri eitthvað!

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 23:25:28 / gretasalome

WHAT TO DO????

Síðasta helgi var svoo skemmtileg. José vinur okkar átti afmæli og í tilefni af því endurinréttu við stofuna í húsinu sem hann var að kaupa sér hérna. Þetta er frekar gamalt hús og ekkert rosalega kósý. VIð náðum að safna saman í málningu og bólstrun á stólana hans, prentuðum út æðislegar myndir og eyddum öllum deginum hjá honum á meðan hann var að vinna. Svo kom hann heim um kvöldið og við héldum veislu handa honum. Þetta var svo gaman...fjölskyldan has kom frá Orlando og flestir vinir hans og við dönsuðum salsa fram á rauða nótt. Svo er þessi vika bara eins of flestar, fiðla, spænska, ræktin og lokaritgerð...pritty much! ég er í geðveikum vandræðum við að velja hvað ég ætla að gera næsta haust og hausinn á mér er að springa yfir því hvað ég eigi að gera næst. Ég fer pottétt heim 29. mars og klára BA gráðuna frá LIstaháskólanum. Svo fékk ég að vita í dag að ég get verið hérna áfram í eitt ár og fengið áfram styrk og útskrifast með BA í violin performance með minor í spænsku...það er mjög freistandi að fá þetta á einu ári verð ég að segja. En svo er spurning um hvort maður eigi að fara beint í master og klára það af EÐA hvort maður eigi að koma heim og gera eitthvað þar. Æji þetta eru allt of mörg spurningarmerki!!!??? Væri fínt að fá smá feedback á þetta;)

» 8 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 16:01:33 / gretasalome

:(

Síðustu tveir dagar eru búnir að vera rosalegir. Á fimmtudagskvöldið vorum við á hljómsveitaræfingu til hálfníu og eftir það vourm við búin að plana surprise partý fyrir Evu vinkonu mína. Hún býr með Allison í húsi rétt fyrir utan campus. Við drifum okkur heim til heinnar eftir æfingu og gerðum allt klárt og svo kom Allison heim með Evu og við stukkum fram. Þetta heppnaðist perfect og kvöldið var æðislegt. Svo skutluðu þau mér heim á campus. Þegar ég kom inn á gang sátu allar stelpurnar frammi og þegar ég kom inn þá hlupu þær að mér og voru bara: Hvar ertu búin að vera? Við erum búnar að bíða eftir þér svo lengi? Ertu ekki búin að heyra hvað gerðist? Ég hafði ekki hugmynd um hvað var í gangi og þá sögðu þær mér að það hefði verið skotárás á campus, fyrir utan tónlistarskólann. Svo kom ein stelpa hlaupandi niður ganginn og sagði okkur að fara inní herbergi og læsa að okkur vegna þess að það væri einhver sem gengi um og væri að skjóta fólk. Vá hvað ég var hrædd. Svo eftir svolítinn tíma kom public safety og sagði okkur að það væri allt í lagi. Þá fengum við samt fréttirnar. Það var strákur á campus sem við þekktum allar sem hafði skotið sig fyrir framan tónlistarskólann. Tvær stelpur af ganginum mínum þekktu hann mjög vel og önnur þeirra deitaði hann yfir sumarið og þær fengu áfall og já....þetta var bara hrikalegt. Svo í gær var minningarathöfn í hádeginu í Elizabeth Hall og það var ótrúlega erfitt. Þessi strákur var svo vinsæll og átti svo marga vini og það voru allir bara eyðilagðir. Það voru samt svo margar sögur sem fóru af því hvernig þetta gerðist og af hverju þetta gerðist en í gær kom þetta loksins á hreint. Hann hafði verið þunglyndur og verið lagður inn á spítalann eftir að bræður hans í bræðrafélaginu fundu sjálfsvígsbréf í herberginu hans. Stetson hafði ætlað að reka hann úr skólanum eftir það vegna þess að um leið og eitthvða svona finnst er hann orðin ábyrgð á skólanum. Þegar hann frétti að það væri búið að reka hann úr Stetson strauk hann af spítalanum og var að labba fram hjá tónlistarhúsinu þegar public safety fann hann og ætluðu að fara með hann aftur uppá spítala. Þá sáu þeir að hann var með byssu og svo tók hann lífið sitt. Þetta er alveg hrikalegt. Hann var straight A nemandi með allt í toppi. Hann var líffræði major með efnafræði sem minor og var á fullum námsstyrk fyrir toppeinkunnir. Maður bara trúir þessu ekki en svona gerist víst ekki bara í sjónvarpinu heldur líka bara fyrir framan mann. Stemningin á campus er búin að vera frekar dauf eftir þetta og það tekur örugglega langan tíma fyrir sumt fólk hérna að jafna sig á þessu. Greta Salóme

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 17:51:17 / gretasalome

Aftur til Flórída!

Vá hvað þetta er fljótt að líða. Ég sit hérna á Leifstöð og er að fara aftur til Flórída eftir u.þ.b. klukkutíma. ég verð samt bara stutt núna og kem heim 29. mars, bara rétt um tveir og hálfur mánuður! Jólafríið er búið að vera æðislegt, ekkert smá afslappað þó að síðustu dagar hafi verið frekar strembnir. Ég er á fullu að skrifa BA ritgerðina mína og loksins er eitthvað farið að ganga með hana. Það eru ótrúlega spennandi hlutir framundan sem ég segi frá seinna þegar meira er komið á hreint og svona. En ég ætla að fara að drífa mig uppí vél.... Greta Salóme Neh haldiði ekki að Dorrit vinkona mín sitji hérna bara rétt hjá mér í risapels!!!! Hverjar eru líkurnar? Ha? Ég ætla að segja krökkunum þeta úti að ég hafi setið við hliðina á The first lady of Iceland haha!

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 06:04:53 / gretasalome

I´m dreaming of a white Christmas......

Ég er búin að sofa í svona þrjá tíma í nótt vegna þess að ég var að læra fyrir Chamber music literature lokaprófið mitt sem var í morgun. Það gekk reyndar mjög vel þannig að það var þess virði. Ég get samt ekki beðið eftir að prófin klárist og ég fari heim. Ég er líka komin í svo mikið jólaskap. Það er búið að vera svo mikið af "jóla-eventum" hérna. Síðast á laugardaginn var Christmas-parade hérna í bænum og það voru bara bókstaflega allir þarna, allur bærinn og allur Stetson. Þetta var alveg ótrúlega amerískt og sætt, heill klukkutími af skreyttum jólavögnum, jólakórum og hljómsveitum og meira að segja jólaklappstýrum.....auðvitað!!! Svo í kvöld var svona jólabrenna hérna á campus þar sem var búin að gera stóra holu í jörðina og brenna greinar og svo sungu allir jólalög og drukku kakó. Þetta er víst árlegt hérna og er kallað Yule-log. Á laugardaginn fórum við allar stelpurnar af ganginum hérna út saman og það var...já....frekar tense. Hlutirnir á milli sumra stelpnanna hérna eru alveg við suðumark. Það er alltaf eitthvað drama og vesen vegna þess að þessi sagði þetta og hin sagði þetta um kæarasta hinnar og svo er ein orðin pirruð á annarri og allt þar fram eftir götunum Ein stelpa er meira að segja búin að ákveða að flytja af ganginum næstu önn vegna þess að hún getur ekki búið með herbergisfélaga sínum lengur. Þetta eru stelpurnar sem ég er eitthvað búin að skrifa um áður. Mér finnst þetta svo sorglegt. Af hverju þurfa stelpur alltaf að vera svona grimmar og með mikið vesen. Ég bara skil það ekki. Ég er allavegna fegin að hafa haldið mér alveg utan við þetta og verið alveg hlutlaus...það er bara best held ég. Ég held að þetta jólafrí verði gott fyrir alla og þá getur fólk kælt sig nður og fengið tækifæri til þess að "sakna" allra og já....ég held að það sé alveg kominn tími fyrir frí. Ég er með smá fréttir fyri þá sem voru ekki búnir að frétta þetta en málið er að ég er búin að ákveða að vera hérna áfram næstu önn fram í mars. Ég ætla að koma heim í byrjun apríl og klára BA gráðuna frá Listaháskólanum í maí. Svo veit maður ekkert hvað maður gerir næsta ár. Ég er reyndar að pæla í að koma hingað aftur og taka eitt ár hérna og útskrifast með BA í violin performance og með minor í spænsku. Þetta er ekkert ákveðið...bara vangaveltur...endilega kommentið og segið mér hvað ykkur finnst...I need your opinion. Hahaha já og svo kommenta bara in general! En allavegna ég hlakka svo mikið til að koma heim og hitta fjölskylduna og alla....ég kem heim 16. des þannig að það styttist í það. Ég get ekki beðið eftir að koma heim.....! Sakna ykkar allra Allavegna...núna ætla ég að læra spænsku í hálftíma og fara svo að sofa... Góða nótt .......................get ekki hætt að hlusta á In the Silence með Jason Upton...magnaður texti og yndislegt lag! Greta Salóme

» 17 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 21:41:09 / gretasalome

SOOOOOOORRRRRRRYYYYYYYYYYY!!!!!!!!!!!!

Sorry krakkar!!!! Ég datt alveg úr blogg-gírnum í allt of langan tíma en örvæntið eigi...Blogg-Greta er komin aftur! Það er auðvitað allt of margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast sem var fyrir næstum því mánuði....sorrysorrysorry!!! Það sem stendur samt uppúr var Thanksgiving. Vá hvað var gaman!!! Andri kom í heimsókn til mín og við gerðum bókstaflega allt sem hægt er að gera í Flórída. Á fjórum dögum tókst okkur að fara til Daytona og leigja okkur fjórhjól á ströndinni, fara í Disney World, fara í Universal studios á Blueman group, elda Thanksgiving dinner með vinum míinum hérna, gista í Orlando eina nótt og eyða heilum degi í Mall at Millenia. Þessi tími var bara geeeðveikur. Ég væri alveg til í eitt stykki Thanksgiving í viðbót. Núna er bara kreisí að gera vegna þess að finals eru að nálgast og allir eru að deyja úr stressi. En ég lofa að vera duglegri að skrifa og láta ykkur vita!!! Luvluv!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 14:46:46 / gretasalome

Komin út aftur!!!!

Þá er ég komin út aftur eftir ææææðislega viku heima á Íslandi. Það var svo gott að koma heim og hitta allla aftur. Á föstudagskvöldið fór ég út að borða með Rúnari og Matta og eftir það fórum við á Celtic og það var surprise afmælisveisla handa mér sem strákarnir og fleiri voru búnir að skipuleggja. Ég get bara sagt eitt TAKK FYRIR MIG!!! Þetta kvöld var æðislegt! Það gerðist rosalega margt áhugavert á þessu kvöldi eins og til dæmis hjálmakaup Ernu hahaha! En já þetta var í alla staði frábært!! Svo núna er ég bara komin til Stetson aftur en það er auðvitað líka mjög fínt. Núna er ég að fara að byrja að æfa nýtt prógram upp þannig að það er mjög spennandi og svo styttist í Thanksgiving:)

» 9 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 17:46:28 / gretasalome

Home sweet home!!

Vá hvað er gott að vera komin heim til Íslands. Það er alveg sama hvað er gaman hjá manni eða hvað manni líður vel úti þá er alltaf svooo gott að koma heim! Ég kom á sunnudagsmorgun og var í LEIÐINLEGASTA flugi sem ég hef farið í á ævi minni. Ok...við fórum í loftið kl 11 um kvöld á íslenskum tíma og áttum að lenda kl hálf sex. Ég gat ekkert sofið í vélinni og var orðin geðveikt syfjuð þegar við vorum alveg að koma til Íslands. Rétt áður en vélin átti að lenda sagði flugstjórinn að það væri svo mikil hálka og snjór á brautinni að við þyrftum að hringsóla í smá stund á meðan væri að sópa brautina og svo gætum við lent eftir 10 mín. Þá loksins sofnaði ég himinlifandi með að vera að fara að koma heim eftir smá stund. Ég veit ekki fyrr en ég vakna við að flugstjórinn er að tilkynna að við værum að fara að hefja aðflug að Egilsstöðum. Vá hvað mér brá...ég hlýt að hafa litið út eins og inniskór í framan vegna þess að konan sem sat hliðina á mér fattaði greinilega hvað var i gangi vegna þess að hún sagði mér strax hvað hafði gerst. Það hafði snjóað svo mikið að ein flugvél hafði farið út af brautinni og þeir hefði ekki þorað að lenda og þess vegna hafi þeir ákveðið að lenda á Egilsstöðum. Þar þurftum við svo að bíða í tvo tíma og máttum ekki fara út úr vélinni eða neitt og ég get svarið það að þetta voru einhverjir lengstu tveir tímar lífs míns. Svo loksins var flogið til Keflavíkur og ég fékk að fara HEIM!!!!! Það var svooo gott að sjá fjölskylduna aftur...vá! Svo er bara búið að vera allt á fullu síðan ég kom heim. Það var samt svolítið skrýtið að koma í húsið sitt og það var búið að breyta bílskúrnum í íbúð, herberginu hennar Sunnu í skrifstofu, pabbi búinn að kaupa sér móturhjól og tveir nýir meðlimir komnir í fjölskylduna. Þessir meðlimir heita Unnar og Gunnar og eru nýjasta áhugamálið hennar mömmu....sem sagt tveir gullfiskar! Ég verð samt ekki hérna lengi af því að ég fer aftur út á mánudaginn og ég verð að segja að ég hlakka rosalega til. Ég sakna allra krakkanna þar mjög mikið og svo er ég ekkert hrifin af þessu veðri hérna! Hahaha....

» 3 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 04:24:41 / gretasalome

Tónleikar!!!

Þá er helgin búin og ég er búin að vera frekar afkastamikil þessa helgi held ég bara. Ég var að koma upp á herbergi eftir að klára að æfa mig og er bara að fara að sofa. Á fimmtudag og föstudag var Elgar-hátíð hérna í skólanum og sinfóníuhljómsveitin var með tvenna tónleika. Á föstudaginn voru samt stærstu tónleikarnir og ég hélt að aðsóknin yrði frekar dræm þar sem þetta voru tveir tímar af Elgar en nei....það var pakkað. Elisabeth hall sem er salurinn í skólanum var troðinn...fólk stóð meira segja alls staðar og aðrir sátu á gólfinu. Þetta var svolítið önnur upplifun en af sams konar tónleikum heima. Tónleikarnir tókust líka furðuvel og fólk hoppaði og öskraði þegar við kláruðum tónleikana...ég hef bara aldrei kynnst svona áður á nemenda-sinfóníutónleikum. Í gærkvöldi fórum við svo á Brickhouse sem er veitingahús hérna í DeLand og spiluðum spil allt kvöldið og eftir það fórum við í party hjá Sigma Nu bræðrafélaginu þar sem ver verið að vígja nýja bræður...!!! Það helsta þessa helgi var samt RUSH sem er eins konar inntökupróf í systrafélögin á campus. Allar steplurnar á ganginum mínum eru búnar að vera að fara á taugum alla helgina. Þetta er sem sagt þannig að það eru fimm systrafélög í Stetson og hvert systrafélag á hús hérna. Á föstudag fóru allar stelpurnar í viðtöl í hvert hús og þurftu svo að bíða allan daginn og allt kvöldið eftir að fá að vita hvort þeim væri boðið aftur í heimsókn á laugardaginn í aðra lotu. Sumar voru ekki látnar vita fyrr en klukkan tvö á föstudagsnóttina. Við biðum allar hérna inni hjá Kathleen og horfðum á vidjó og spjölluðum og svo komu stelpur úr systrafélögunum til þess að láta þær vita eina í einu hvort að þær fengju ,,second bid´´eða ekki. Auðvitað varð rosadrama úr þessu öllu þegar sumar komust áfram og sumar ekki. Svo í gær var önnur lota og þær þurftu að fara í gegnum þetta allt aftur og sumar komust áfram og sumar ekki. Í dag var svo síðasti dagurinn og sumar komust inn í sorority og sumar ekki....ég er bara fegin að hafa ekki farið í gegnum þetta, ég hefði farið á taugum. Þetta er basically þriggja daga vinaviðtal. Ef þú ert svo heppin að komast inn í systrafélagið þitt þá þarftu að borga 600$ á önn til þess að vera í því og eiga vini í félaginu...haha amerískt.

» 11 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 02:58:04 / gretasalome

Back to school!!!

Þá er allt komið í full swing eftir haustfríið. Ég verð eiginlega að segja að ég er fegin...svona frí eiga bara ekkert við mig hahah! Það er allt að verða brjálað hérna út af næstu helgi sem er RUSH helgi fyrir öll sorority-in og fraternity-in á campus. Ég hef ákveðið að fara ekki í gegnum rush út af mjög mörgum ástæðum. Ég ætlaði alltaf að fara í eitthvað sorority en svo hætti ég við á síðustu stundu og ég er bara ágætlega sátt við það held ég. Svo er Halloween alveg að bresta á eða 31.okt og það eru allir að plana hvað þeir ætla að vera. Ég hélt að það væri amerísk klysja að Halloween væri ágæt afsökun fyrir stelpur til þess að klæða sig í búninga sem sýna aðeins meira hold heldur en venjulega en ég get sagt ykkur svolítið.....ÞAÐ ER SATT!!!! Næstum því hver einasta stelpa á ganginum mínum ætlar að vera playboy-kanína....hvað er málið? Ég var eins og hálfviti búin að ákveða að ég myndi nota dimmisio búningin úr MR sem var svona hálfgerður víkingabúningur/æsirnir, núna er ég ekki svo viss...það kemur allavegna í ljós. Í þessari viku eru tvennir tónleikar með sinfóníuhljómsveitinni, ég verð mjög glöð þegar það er búið. Við erum með risaprógram og ég held að þetta verði dúndurtónleikar.

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.10.2007 03:40:30 / gretasalome

Rólegheit og stólastuldur!

Síðustu tveir dagar eru örugglega búnir að vera rólegustu dagarnir mínir í mjög langan tíma. Ég verð samt að játa að þetta er kærkomið frí frá tímum, stelpudrama og stressi. Það eru bókstaflega ALLIR farnir heim. Heimavistin er alveg tóm, kannski þrjár stelpur fyrir utan mig sem eru hérna. Það er ótrúlega skrýtið að vera hérna þegar allt er svona tómt en sem betur fer er Mandy hérna og við erum að halda hvorri annarri félagskap. Ég er bara búin að vera að æfa mig, lesa og fara í ræktina. Það er allt opið hérna þó það sé frí þannig að maður er bara með allt út af fyrir sjálfan sig. Ég er nú samt ekki alveg ein vegna þess að ég er að passa tvo fiska fyrir vinkonu mína á meðan hún er í fríi...haha! Ég ætla að halda áfram aðeins með staðhæfingarnar mínar um að amerískar stelpur séu dramadrottningar. Það er stelpa hérna sem ég þekki en er nú ekkert mikið í kringum sem er einu ári eldri en ég. Í fyrra var hún með strák sem er úr Stetson en það fór ekki betur en svo að hann hætti með henni og byrjaði með vinkonu hennar. Hún tók þessu auðvitað ekki vel og er búin að segja alls konar sögur um hann og vinkonu sína og fer ekki fögrum orðum um þau tvö. Í ár býr hún í Stetson-íbúðunum sem eru fjölbýlishús hérna á campus. Þessi fyrrverandi kærasti hennar lenti í íbúð rétt hjá henni og hún sér hann þess vegna daglega og er ekkert mjög hress með það. Eitt af því sem hann tók upp eftir að þau hættu saman voru reykingar og hann situr núna fyrir utan íbúðina sína á hverjum degi og reykir. Hann verslar víst í Good Will (góða hirðinum) og þar keypti hann tvo garðstóla fyrir sig og kærustuna og svo lítið borð til að sitja við fyrir framan íbúðina sína og reykja. Á miðvikudaginn fór hann út úr bænum á tónleika með kærustunni og voru það sömu tónleikar og hann fór með vinkonu mína á fyrir ári síðan. Hún var svo fúl yfir þessu öllu saman á miðvikudaginn að hún fór ásamt meðleigjendum sínum sem eru tvær stelpur og þær framkvæmdu svokallaða operation Good Will. Þær fóru sem sagt um nóttina og stálu stólunum og borðinu sem hann keypti í Good Will. Svo spreyjuðu þær þetta með bleiku spreyi svo að það væri ekki hægt að þekkja húsgögnin. Ef einhver ætlar að segja mér núna að amerískar stelpur séu ekki dramadrottningar þá er ég ÓSAMMÁLA!!! Þær eru klikkaðar....flestar samt á mjög góðan hátt hahah!

» 4 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 05:11:28 / gretasalome

Fall break!!!!

Ég var að klára að skrifa spænskuritgerðina mína um Cabeza de Vaca og lærði líka undir spænskuprófið mitt sem ég er að fara i á morgun. Það er búið að vera mjög mikið að gera. Í morgun var ég í prófi í kammertónbókmenntum. Ég var mjög kvíðin fyir þessu prófi en svo gekk bara svona ljómandi vel og ég fékk A. Á morgun er svo síðasti dagur fyrir fall break og þá fer ég í frí fram á mánudag. Það eru allir að fara í burtu yfir helgina þannig að ég verð bara að dunda mér eitthvað hérna. Það verður reyndar örugglega mjög fínt...ég næ að æfa mig mjög mikið og nota tímann í að læra og hugsa marga hluti yfir. Ég veit nú samt um nokkra sem ætla að vera hérna yfir helgina. Það er mjög mikið búið að ganga á hérna á síðustu dögum, sem dæmi má nefna að Gonga, hamsturinn sem Christie og Mandy eiga dó:( það var mikil sorg í því...R.I.P Gonga. Svo var að koma í ljós að ég á að spila sóló með strengjasveitinni hérna...við erum að fara að spila Corelli jólakonsertinn og ég er að spila fyrstu sólófiðluna og strákur sem heitir Ishttar spilar aðra fiðluna. Það ætti að verða mjög skemmtilegt.... Í kvöld fór ég á The Well sem er intervarsity samkomur...það var æðisegt...algjör soulfood!! Ég var að uppgötva nýja söngkonu sem heitir Britt Nicole og er svo ótrúlega svöl....ég er búin að hlusta á lag með henni non stop sem heitir Set the world on fire....mæli með því!! Bæjó

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 05:39:50 / gretasalome

The Drama continues!!!!

Enn einn sunnudagurinn búinn. Þessi dagur var alveg hrikalega rólegur. Ég æfði mig bara og lærði og hékk með stelpunum í dag. Í gærkvöldi fórum við í pajama-partý hjá Pi Kappa fraternity-inu. Ég ætlaði að vera alger partý-pooper og fara bara í venjulegum fötum en það var ekki tekið í mál og við fórum allar í TJ Maxx og keyptum ofursæta náttkjóla. Það var mjög fínt í partýinu og svo fórum við á Halftimes á náttfötunum og svo loksins heim að lúlla. Við fórum samt ekki allar vegna þess að ein fór á deit með áðurnefndum hernema frá Daytona. Hin var auðvitað alveg brjáluð yfir þessu öllu saman og þegar við vorum að hjálpa henni að taka sig til og mála sig og eitthvað vildi hin ekkert með það að hafa og bað alla vinsamlegast að tala ekki við hana um strákinn sem væri að eyðileggja líf vinkonu sinnar. Deitið gekk samt víst mjög vel en hún kom ekki heim í nótt heldur gisti í Daytona okkur til mikillar undrunar og herbergisféla hennar til mikillar gremju. Í kvöld borðuðum við allar saman kvöldmat í The commons og það kom mér reyndar á óvart hvað þær gátu lagt þetta allt til hliðar í smá stund og við hlógum eins og bavíanar og öll dýrin í skóginum voru vinir! Ég er svollítið kvíðin fyrir næstu viku. Ég er að fara í stórt próf í kammersögu á þriðjudag og svo annað próf á miðvikudaginn í spænsku. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að á fimmtudag og föstudag er fall break og þá ætti maður að geta nýtt tímann vel og komið miklu í verk. Ég er farin að lúlla....peace out!!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.10.2007 15:57:56 / gretasalome

Dramadramadramadramadrama!!!!!!!!

Ok....ef einhver heldur að það sé mýta að amerískar stelpur séu dramadrottiningar og geri mál úr ÖLLU....þá get ég sko sagt ykkur. Ok á ganginum mínum búa tvær stelpur sem eru mjög góðar vinkonur mínar, þær eru sem sagt roomates. Á fimmtudagskvöld fóru allir á P-lounge og þar með talið ein af þessum herbergisfélögum. Með okkur fór kærasti einnar vinkonu okkar og tveir vinir hans úr herflugskóla hérna rétt hjá. Allavegna til að gera langa sögu stutta þá fara hjólin eitthvað að snúast hjá þessari stelpu (herbergisfélaganum sem fór út) og einum af þessum herstrákum. Daginn eftir segir hún herbergisfélaganum sínum frá þessu og það fer ekki betur en svo að hin verður brjáluð og segist ekki trúa því að hún myndi gera neitt án þess að ræða það við sig allavegna áður. Sem betur fer var ég löngu farin að sofa þegar þetta gerist en daginn eftir þá vakna ég við þvílík öskur og fer fram og þá eru þær tvær í hávaðarifrildi frammi á gangi. Ein segist ekki skilja hvers konar vinkona myndi einhvern tíman gera neitt með neinum án þess að ræða það við vinkonu sína fyrst og hin segir að hún sé bara afbrýðisöm vegna þess að hún var heima þetta kvöld. Allavegna þetta ýfist upp og þær fara að rífast yfir ýmsu fleiru eins og glasanotkun inni á herberginu og öðrum fáránlegum hlutum. Við náum að róa þær loksins og þær létu þetta kælast yfir daginn. Í gærkvöldi var svo partý hjá Phi Sigma fraternity-inu. Við fórum allar þangað og þar með talið þær tvær. Eftir það fóru svo allir á Halftimes. Christie, stelpa sem ég er mjög mikið með kom með okkur og við reyndum að halda þessum tveim stelpum góðum. Svo þegar við erum búnar að vera á Halftimes hitta þessar tvær einhverja gaura frá Daytona (sem voru frekar sleasy). Einn af þeim, lágvaxið vöðvatröll með 10 bling í eyrunum, fer að spjalla eitthvað mikið við einn herbergisfélagann (þessa sem fór ekki út á fimmtudaginn). Ég skipti mér ekkert af þessu og hélt mig bara hjá Christie og fleira fólki. Klukkan tvö þegar Halftimes lokaði svo voru allir að fara út nema þessi tvö stóðu bara og töluðu saman og ætluðu ekkert að hreyfa sig. Við heyrum hvað hann var að segja við hana og það voru ekki hlutir sem maður segir við stelpu sem maður hittir í fyrsta skiptið. Hún hinsvegar er alveg clueless og hlær bara og brosir. Herbergisfélaginn hennar fer þá til hennar og dregur hana í burtu. Við löbbuðum svo heim og á leiðinni þá fyrst kom sprengjan. Ein segist ekki trúa því að hún hefði dregið hana í burtu frá honum, hann hafi sko verið frá Daytona og verið að læra að verða kýropraktor (hahaha) og að hann hefði sko ekki verið neitt annað en kurteis og skemmtilegur (yeah right). Kvöldið endar þannig að önnur er inni hjá mér skælandi og hin er inni hjá Christie skælandi....Dramadramadramadrama. Við sjáum svo bara til hvað gerist í kvöld en hlutirnir eru sko aldeilis að verða tense. Til að undirstrika það hvað amerískar stelpur eru miklar dramadrottningar þá er ég líka með eina aðra sögu af stelpunni sem býr á móti mér. Úff....ég er að rölta hérna á ganginum í sakleysi mínu í gær. Allt í einu sé ég að það er opið inn til hennar og það er einhver maður sem situr í gluggakistunni hennar og er að tína upp glerbrot. Glugginn var í þúsund morum yfir rúminu hennar og á gólfinu og út um allt. Hann spyr mig hvort ég viti hvað hafi gerst en ég hef náttúrulega ekki hugmynd. Um kvöldið hitti ég svo stelpuna og spyr hana hvað hafi gerst. Hún bara brosti sínu blíðast og sagði...ó já það...ég kýldi í gluggann. Ég vissi ekki hvernig ég átti að bregðast við og brosti bara og sagði..Oh. Þá sagði hún...já æji ég var svolítið pirruð í gær, vinkona mín var svo pirrandi. Ég er að segja það....þessar stelpur þrífast á drama hahaha....þetta er í alvörunni svona. Í gær gerðist samt eitt mjög skemmtilegt. Konni, skólabróðir minn úr Listaháskólanum keyrði hingað upp eftir og við borðuðum hádegismat á Boston café hérna í downtown. Það var æðislegt að hitta Íslending og sjá kunnuglegt andlit. Hann varð reyndar alveg ástfanginn af þessum stað hérna og ætlaði bara að setjast að hérna og fara í Stetson.....ég skil hann vel. Það er eitthvað svo æðislegtt við þennan skóla...en ég er farin að æfa mig núna....bless í bili!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 8452